Blandaður úrgangur
  • Salernisúrgangur
  • Úrgangur frá gæludýrahaldi
  • Bleyjur
  • Gúmmíhanskar
  • Umbúðir sem ekki er hægt að hreinsa
  • Tyggjó

Í almennu tunnuna sem getur verið grá eða svört fer sá úrgangur sem ekki er endurvinnanlegur.

  • Dagblöð
  • Tímarit
  • Umslög
  • Sléttur pappi
  • Bylgjupappi
  • Pizzakassar
  • Morgunkornskassar

Í tunnuna með bláu loki má setja allan pappa og pappír

  • Niðursuðurdósir
  • Lok af glerkrukkum
  • Plastbrúsar
  • Plastfilma
  • Plastpokar
  • Frauðplast
  • Plastöskjur
  • Sprittkertabikarar 

 

Í tunnuna með grænu loki má setja allar plastumbúðir

Gámasvæði í landi Stórutjarna
Storutjarnir

Opnunartímar

Opnunartími: 

Miðvikudaga kl. 16:00-18:30
Föstudaga     kl.  16:00-18:30 
Laugardaga   kl. 10:00-12:00

 

(Opnunartími er birtur með fyrirvara um breytingar hjá sveitarfélaginu) 

Gámavöllur Þingeyarsveitar er staðsettur í landi Stórutjarna. Á gámavellinum er starfsmaður sem tekur á móti fólki og metur farma sem komið er með. Völlurinn er opinn öllum sem þangað leita. íbúar sveitarfélagsins og sumarbústaðareigendur fá klippikort sem skoðast sem aðgöngumiði að gámavelli. Rekstraraðilar geta komið á gámavöllinn og greiða fyrir losun á sorpi eftir gjaldskrá um sorphirðu í Þingeyjarsveit sem samþykkt er af sveitarstjórn.

(Opnunartími er birtur með fyrirvara um breytingar hjá sveitarfélaginu.)
Gjaldskylt

Blandaður úrgangur

Grófur úrgangur /Húsgögn

Blandað timbur

Plast sem ekki eru umbúðir

Steinefni: gler-mold-múrbrot

Gjaldfrjálst

Plastumbúðir

Bylgjupappi

Dagblöð/Tímarit/Pappi

Fernur

Málmar

Hjólbarðar

Landbúnaðarplast

Steikingarfeiti

Raftæki

Spilliefni

Allur úrgangur sem fellur undir gjaldskylt þurfa rekstraraðilar að greiða fyrir á gámavelli og heimili þurfa að sýna klippikort sem starfsmaður klippir af í samræmi við rúmmál farms.

Úrgangur sem fellur undir gjaldfrjálst flokkinn þarf ekki að greiða fyrir og ekki er tekið klipp af klippikortum. Steinefni og garðaúrgangur er losaður án endurgjalds á gámavelli.

Allir greiðendur sorphirðugjalda, heimili og sumarbústaðir, geta nálgast klippikort á skrifstofu sveitarfélagsins eða á gámavellinum á opnunartíma

Með sorphirðugjöldunum fylgir eitt klippikort á ári. Ef kortið klárast er hægt að kaupa nýtt kort á 8300kr á skrifstofu sveitarfélagsins. Eitt klipp á klippikortinu er 0,25 rúmmetrar, heildar rúmmetra fjöldi á hverju korti eru 4 rúmmetrar. Einungis er tekið klipp af förmum sem eru gjaldskyldir. Rekstraraðilar fá ekki klippikort en þeir geta losað á gámavelli og er þá rukkað fyrir í samræmi við gjaldskrá sveitarfélagsins.

Klippikortið gildir einnig að gámavelli á Akureyri.

Garðaúrgangur
Á gámavelli verður gámur fyrir garðaúrgang. Einnig verður staðsettur gámur á Laugum fyrir garðaúrgang yfir sumartímann.

Dýrahræ
Ekki er tekið við dýrahræum á gámavelli við Stórutjarnir. Rekstraraðilum er bent á sorpmóttkökur á Akureyri og Húsavík. Rekstraraðilar greiða fyrir eyðingu á dýrahræum eins og öðrum úrgangi sem þeir koma með.