16. nóvember 2026

Móttökustöð Terra

Hjá Terra í Berghellu er úrgangur vigtaður - ekki áætlaður eftir rúmmáli

Iðnaðarmenn, verktakar og önnur fyrirtæki geta komið með úrgang á móttökustöð Terra í Berghellu í Hafnarfirði og greitt samkvæmt raunverulegri þyngd hans.

Mikil umræða hefur skapast að undanförnu um gjaldtöku fyrir úrgang frá iðnaðarmönnum og verktökum. Þar hefur meðal annars verið kallað eftir skýrari og gagnsærri aðferðum við að ákvarða magn úrgangs.

Á móttökustöð Terra að Berghellu 1 í Hafnarfirði er notast við vigtun í stað þess að áætla rúmmál farmsins.

Fyrirkomulagið er einfalt. Við komu er bíllinn vigtaður, úrgangurinn losaður í viðeigandi flokka og bíllinn síðan vigtaður aftur við brottför. Þannig fæst fram raunveruleg þyngd úrgangsins sem skilað er inn og gjaldtakan miðast við kíló og viðkomandi úrgangsflokk.

Gagnsæ, einföld og hröð þjónusta.

Markmið Terra er að bjóða fyrirtækjum þægilega og skilvirka þjónustu þar sem skýrt er hvernig gjaldtaka fer fram.

Á móttökustöðinni er tekið á móti fjölbreyttum úrgangsflokkum, meðal annars timbri, plasti, pappa, málmum, gleri og blönduðum rekstrarúrgangi. Starfsfólk er á staðnum til að aðstoða við flokkun og leiðbeina viðskiptavinum.

Þjónustan stendur bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem kjósa að greiða á staðnum til boða.

Engar ágiskanir. Bara vigtun.

Staðsetning: Berghella 1, Hafnarfirði

Opnunartími: 7:00-16:00 alla virka daga

Nánari upplýsingar um móttökustöðina má finna á terra.is.

 

  • Netspjall: Neðst í hægra horni á  terra.is  (opið virka daga kl. 8:00–16:00)

  • Sími: 535 2500 (opið virka daga kl. 9:00–15:00)