Vöruúrval
Erum með mikið úrval af vörum sem koma að góðum notum við söfnun á spilliefnum, raftækjum og sóttmenguðum úrgangi.
Auk móttöku á spilliefnum og raftækjum sinnir Terra Efnaeyðing margvíslegri annarri
þjónustu s.s. söfnunarþjónustu (losun íláta), skjalaeyðingu, söfnun matarolíu, vöruförgun,
sölu og/eða leigu sérhæfðra íláta og ráðgjöf um spilliefni.
Söfnun á matarolíu
Terra Efnaeyðing sækir matarolíu (steikingarolíu). Olíunni er safnað hjá veitingastöðum, mötuneytum og matvælaframleiðendum sem nota hana til djúpsteikingar.
Olían er send til endurvinnslu og er unnin úr henni lífdísilolía sem notuð er sem
eldsneyti á ýmis tæki.
Ráðgjöf um spilliefni
Terra Efnaeyðing hefur sérþekkingu á flokkun spilliefna, eiginleikum þeirra og hvaða hætta fylgir hverjum efnaflokki. Einnig á reglum um merkingar, flutninga, söfnun og geymslu. Í tilvikum þar sem reynir á dýpri skilning á efnafræði en gengur og gerist hefur Terra Efnaeyðing yfir slíkri þekkingu að ráða.
Við veitum m.a. ráðgjöf um heppileg söfnunar- og geymsluílát.
Söfnunarþjónusta
Við bjóðum upp á alhliða söfnunarþjónustu spilliefna, útvegum heppileg ílát, hvort
sem um er að ræða spilliefni, raftæki, trúnaðarskjöl, matarolíu, málma eða önnur
endurvinnsluefni.
Eftir að óskað er eftir þjónustu þá gefur Terra Efnaeyðing sér þrjá virka daga til að
bregðast við þeirri beiðni.
Eyðing trúnaðargagna
Bjóðum upp á ábyrga og umhverfisvæna þjónustu við eyðingu á trúnaðarupplýsingum, hvort sem þær er að finna á pappír, filmum eða hörðum miðlum. Filmur og diskar eru tættir fyrir förgun. Trúnaðarskjöl eru einnig tætt og pappír fer í endurvinnslu.
Við byggjum á yfir 20 ára reynslu og vinnum samkvæmt vottuðum verkferlum
undir gæðakerfunum ISO-9001 og EN-15713.
Ef viðskiptavinir óska þess er þeim velkomið að vera viðstaddir eyðingu gagna og þarf þá að panta tíma. Rík áhersla er lögð á fullkomið öryggi og trúnað gagnvart viðskiptavinum.
Mótttaka raftækja
Terra Efnaeyðing hefur annast söfnun á raftækjum um langt árabil og bæði sótt og tekið við þeim frá söfnunarstöðvum sveitarfélaga og fyrirtækjum um land allt.
Terra Efnaeyðing leggur mikla áherslu á rétta meðhöndlun raftækja.
VANTAR EFNI
Það vantar efni fyrir þennan kassa. Á að taka hann út?
Erum með mikið úrval af vörum sem koma að góðum notum við söfnun á spilliefnum, raftækjum og sóttmenguðum úrgangi.
Efnaeyðing flokkar raftæki í fimm flokka eftir mismunandi meðhöndlun sem þau krefjast.
Kælitæki
Kælitækin eru send til meðhöndlunar og endurvinnslu í Svíþjóð þar sem málmur og plast eru aðskilin frá einangruninni. Málmur, einangrun og plast fara í endurvinnslu en kælimiðlinum er eytt með brennslu.
Skjáir
Sjónvarps- og tölvuskjáir eru sendir til endurvinnslu í Svíþjóð.
Ljósaperur
Ljósaperum er safnað sérstaklega vegna þess að flúorperur, halógenperur og sparperur innihalda spilliefnin flúor og kvikasilfur sem þarf að fanga til að þau komist ekki í jarðveg.
Þessi flokkur er meðhöndlaður þannig að perurnar eru muldar og mengað ryk er
aðskilið frá glermulningnum. Glermulningurinn fer til eyðingar erlendis.
Stór Raftæki
Hér undir falla þvottavélar, uppþvottavélar, þurrkarar, helluborð, bökunarofnar, eldavélar og örbylgjuofnar.
Þessi tæki eru afhent málmenduvinnslufyrirtækja innanlands sem flytja þau til endurvinnslu erlendis.
Smá Raftæki
Móttökustöðin Berghellu 1 er opin alla virka daga: 8:00-17:00
Efnaeyðing er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Vörulager er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin Hlíðarvöllum Akureyri er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin í Vestmannaeyjum er opin virka daga: 10:00-18:00 og helgar 11:00-16:00
Móttökustöðin Akranesi er opin mán, þri, mið og fös: 10:00-18:00, fim 10:00-20:00 og lau 9:00-15:00
Þjónustuver er opið alla virka daga: 9:00-15:00
Netspjallið er opið alla virka daga: 9:00-16:00