Við hjá Terra viljum styðja við aðila sem vinna að lausnum sem stuðla að sjálfbærni og betri framtíð fyrir okkur öll. Nú opnum við fyrir umsóknir um styrki til aðila – en aðeins þau verkefni sem falla að styrktarstefnu Terra og snýr að umhverfismálum og nýsköpun koma til greina.

Skilyrði fyrir umsókn

Við leitum að aðila, frumkvöðlum eða sprotafyrirtækjum sem eru með hugmyndir eða verkefni sem styðja við:

🔄 Umhverfismál - Betri umgengni við jörðina
Verkefni sem stuðla að hringrásarhugsun, draga úr umhverfisáhrifum eða bæta úrgangsstjórnun.

💡 Nýsköpun - Sköpum nýjar leiðir að hringrásarhugsun
Frumlegar lausnir sem bæta nýtingu auðlinda, efnisstrauma eða stuðla að sjálfbærari samfélögum.

🌍Sjálfbærnistefnu Terra - Stuðlum að sjálfbærni

Verkefni sem styðja við sjálfbærnistefnu Terra og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem félagið leggur áherslu á, sjá nánar í sjálfbærnistefnu Terra.

🥰Hafa jákvæð áhrif á samfélagið í heild eða í nærumhverfi Terra

Við störfum um allt land og viljum styðja við verkefni í okkar nær samfélagi ef verkefnið snýr ekki að áhrifum á samfélagið í heild. Hægt er að kynna sér hvar á landinu Terra starfar inn á terra.is

Umsóknarfrestur er til 👉1. júní 2026

Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má finna hér

 

Við hlökkum til að kynnast ykkar hugmyndum og styðja við verkefni sem móta framtíðina í takt við gildi okkar.

Tökum höndum saman fyrir sjálfbærari framtíð.