• Um Terra umhverfisþjónustu

    Um Terra umhverfisþjónustu

    Skiljum ekkert eftir 

    Terra umhverfisþjónusta leggur ríka áherslu á að auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir; endurnýta, flokka og meðhöndla endurvinnsluefni og annan úrgang með ábyrgum hætti. Að skilja ekkert eftir er þýðing á Zero Waste sem er alþjóðlegt átak um að bæta umgengni við jörðina með því að draga úr mengun og minnka sóun. Terra umhverfisþjónusta hefur einsett sér að aðstoða fyrirtæki og heimili í þessum efnum, hvetja til minni notkunar á umbúðum og einfalda flokkun.  

    Fyrirtækið hefur starfað við flokkun og söfnun endurvinnslu efna frá árinu 1984 og vinnur með fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum í endurvinnslu og umhverfisvænni úrgangsstjórnun með áherslu á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.