Umhverfisverðlaun Terra umhverfisþjónustu 2022

Á degi umhverfisins voru veitt Umhverfisverðlaun Terra umhverfisþjónustu fyrir árið 2022.

Gunnar viðskiptastjóri og Valgerður forstöðumaður viðskiptadeildar hjá Terra umhverfisþjónustu afhendu Heiðdísi Búadóttur umhverfisstjóra Eyktar verðlaunin í höfuðstöðvum Eyktar.

Eykt ehf hlaut umhverfisverðlaun Terra umhverfisþjónustu 2022 fyrir framúrskarandi, markvissan og eftirtektarverðan árangur og ábyrga stefnu í umhverfismálum. 

Nú um síðastliðin áramót tóku í gildi lagabreytingar sem skikka fyrirtæki til að flokka úrganga í 7 flokka, en þess má geta að hjá Eykt þurfti enga lagabreytingu til að bæta flokkun þar sem þau hafa verið til fyrirmyndar hvað varðar þennan málaflokk. Úrgangsstjórnun Eyktar er til fyrirmyndar og starfar fyrirtækið auk þess eftir ISO9001 gæðastaðli. Eykt hefur náð þeim frábæra árangri að ná endurvinnsluhlutfallinu í rúmlega 90% og er markmið þeirra að ná enn betri árangri á árinu.

Terra umhverfisþjónusta vill hvetja fólk og fyrirtæki til þess að flokka og endurvinna betur. Úrgangur er ekki bara úrgangur heldur er um verðmæti að ræða sem er mikilvægt að fara vel með og ná honum aftur inn í hringrásarhagkerfið.

Umhverfisverðlaunin er hvatning til að gera betur. Hlutverk Terra umhverfisþjónustu er að vinna með fyrirtækjum, opinberum aðilum og einstaklingum, sem þjónustuaðili og ráðgjafi. Við komum svo að söfnun úrgangs og komum honum í réttan farveg til endurnýtingar og endurvinnslu.

 

Til hamingju Eykt ehf. með Umhverfisverðlaun Terra umhverfisþjónusta og frábæran árangur.

Skiljum ekkert eftir!